girls just wana have fun
MA-ingar
erfingjar 4f
21.10.2007 16:01:26 / rakel

tæpar tvær vikur...

jæja elskurnar loksins kemur nýtt blogg.

 

hehhee það er nú eitthvað búið að gerast frá síðasta bloggi t.d.

var ég, katja og marianne spurðar hvort að við myndum vilja vera ráðgjafar/sölumenn fyrir oss i mellom sem er búð eins og adam og eva, sem selur hjálpartæki ástarlífsins. hehehheh efast ekki um það að við gætum malað gull hérna í sveitinni heheh svo hver veit nema að maður skelli sér í bransann;)

 

við erum búin að vera geggjað active í info-gruppunni minni, senda presse-melling til dagblaða, sjónarps- og útvarpsstöðva. það voru tónleikar á fimmtudaginn og þá sáum við ávöxt erfiðisins;), það var vel mætt og geggjaður stemmari. skál fyrir okkur;)

 

það eru bara tæpar tvær vikur í að litla gerpið mitt komi í heimsókn, hlakka svo geggjað til að fá þig elskan

 

helga sif og kristín hringdu í mig í gær og tilkynntu það að þær ætla að koma í heimsókn á næsta ári, þær voru nú reyndar fullar þannig að við sjáum nú til hvað verður úr þessu;) þið eruð allavega ávallt velkomnar til mín ;)

 

eftir að ég keypti piparkökur hér um daginn þá er ég bara ekki búin að hugsa um annað en jólafríið... hlakka svo geggjað til!!! ohh síðasta prófið mitt er 17 des þannig að ég tek flug 18 des heim og svo ætla ég að vera til ca 10-15 jan heima á klakanum.

 

svo var ég að komast að því að ég verð voða lítið hérna í noregi á næsta ári, ég tek praksis í endann af ágúst - byrjun sept, svo fer ég út upp úr miðjum sept og verð fra að jólum. svo ætla ég að skrifa ritgerðina mína heima á íslandi.

 jæja ætla ekki að hafa þetta mikið lengra.

 

kys og klemz frá vinningshafa verðlaunanna, lélagasti bloggarinn 2007 ;)

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 11:05:59 / rakel

back in business people;)

Jæja gott fólk

 Loksins nennir maður að blogga. Get nú ekki sagt að þetta sé góð frammistaða hjá manni en ég skal reyna að vera virkari héðan í frá.

Jæja hvar á ég að byrja??? Þar sem ég hef bara ekki bloggað síðan ég kom hingað ætli maður verði ekki bara að byrja á byrjuninni.

Fadderuka 2007 (sem er fyrsta vikan í skolanum sem er helguð djammi og djus) heppnaðist með glæsibrag. Mikið af skemmtilegum tónleikum (m.a. spilaði hljómsveitin sem ég og hópurinn minn gerðum tónlistarmyndband fyrir, þar sem rakel og marianne slógu í gegn þegar þær tóku að sér að syngja síðasta lagið;)hehehehe ). Nýnemarnir voru mun fleiri í ár en í fyrra, og vil ég meina að fíni nýnemabæklingurinn hafi eitthvað með það að gera;) það var líka mjög fyndið að fólk þekkti mig frá bæklingnum/heimasíðunni og ókunnugt fólk var kallandi á eftir mér rakel islandia!!! Heheheh Þannig að ég er sem sagt orðin celeb hér í rena;) En sem sagt þetta var mjög skemmtileg vika í alla staði (það eru myndir inni á facebook sem þið getið skoðað;)

Síðan er ég bara búin að vera að læra, djamma og skemmta mér.

Skrapp reyndar til Höllu og Kára í Köben. Þar var bara æðislegt. Þetta var nú frekar mikil skyndi ákvörðun hjá okkur stöllunum, ég keypti miða á fimmtudagskvöldi, tók rútu á flugvöllinn 4 um morguninn og flaug út ca 7-8 á föstudagsmorgni. Það var mikið verslað í kóngsins köben, við fórum í tívolíið þar sem ég og Kári mönuðum hvort annað í hvert tækið á eftir öðru (hélt að ég myndi deyja í fallturinum) svo var mikið slappað af, rölt upp og niður strikið, borðuðum góðan mat (heheh ég og halla hættum okkur m.a. í 12 tapas smárétti á spænskum veitingarstað, fengum mikið af furðulegu dóti þar á bæ;)). Eins og sannur íslendingur þá fórum við að sjálfsögðu út á djammið. Verð nú að segja að Danir eru nú heldur rólegri í þeim málum, allavega miða við crasy frændur þeirra íslendinga og norðmenn;)

Eins og ég hef áður nefnt þá var þessi ferð alveg kongen;) frá a-ö. Takk Halla mín og Kári fyrir að taka á móti mér:* þið eruð svo að sjálfsögðu alltaf velkomin til Norge.

Svo er það pressemelling: ATH!!! Nanna Ármannsdóttir er væntanleg til Noregs fimmtudaginn 1 nóvember. Watch out Norway- two Ármannsdóttir means trouble;) Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

Ég skal lofa að reyna að láta ekki líða allt og langt milli blogga.

Kys og klemz fra norge


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 23:10:14 / rakel

komin í sumarfrí

hæ elskurnar

 

nú er ég komin á klakan þannig að bloggið er komið í sumarfrí þanngað til í ágúst.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 13:19:05 / rakel

14 dagar ...

hæ elskurnar

 jæja þá er maður búinn að skila af sér selvvalg og mappefilm og nú er það bara að lesa fyrir prófið sem ég fer í 5 júní klukkan 11:00 - 11:30 og viðfangsefnin sem við fengum  og eigum að eigum að fokusera á eru

mappefilm

selvvalg

radioinnslaget

en svo getum við að sjálfsögðu fengið spurningar frá öllu pensuminu.

ohh það verður svo gott þegar allt þetta er búið, klukkan 11:30 fer ég heim og pakka og ganga frá húsinu því ég á flug heim til íslands klukkan 8 um morguninn föstudaginn 8 júní. ohh hlakka svo til, hlakka svo til, hlakka svo til...

en já tónlistarmyndbandið sem hópurinn minn gerði kom alveg ótrúega vel út, set inn linkinn þegar það fer á netið.

ætla ekki að hafa þetta lengra

 

kys og kra fra norge


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 00:54:16 / rakel

jæja gott fólk

jájá í dag er bara 1 mánuður þanngað til að ég kem heim. get ekki beðið eftir því að hitta alla.

en ég sit nú ekki auðum höndum þanngað til. það sem ég þarf að gera fyrir 15 maí er að klára að klippa stuttmynd, gera mynda og gera sjónvarpssendingu/ fréttasendingu, svo fyrir 25 maí þarf ég að vera búin að klippa tónlistarmyndbandið sem að við eru að gera og skrifa langa skýrslu um það. svo erum við að fara að vinna með animation, eða við eigum að gera animation mynd og það á að vera búið fyrir 25 maí. svo fer ég í munnlegt próf einhverstaðar á dögunum 5-7 júní. svo á ég flug klukkan 8 um morguninn 8. júní og verð lent á klakanum 8:45. veiiiiii.

þetta er dagskráin hja mér næstu vikurnar. :S

en já svo ætlum við kobbi að halda svaka partý svona að tilefni þess að jakob varð 22 ára á sunnudaginn og svo er það náttúrulega euróvision;) hehehe.

hef ekki mikið meira að segja nema jú heheheh

 ég fékk messages frá tagged þar sem einhvað ógerð frá morokko eða maraco eða eitthvað, sem var að segja hversu falleg ég væri og að ég væri allt sem hann væri að leyta eftir í konu og hvað hann líkaði vel við mig (þú þekkir mig ekki einu sinni ógeðið þitt) og hvor ég myndi ekki senda honum msn mitt. hvað er að fólki... ójbara

 

hehhe þetta var nú samt pínu fyndið heheheh.

hef þetta ekki lengra. læt vita hverni gengur með allt;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 18:38:59 / rakel

páskar framhald

jæja í tilefni af 1 árs afmæli mínu í noregi ákvað ég að blogga pínu. já got fólk akkurat i dag þá er ég búin að vera 1 ár í noregi, maður er búinn að upplifa bæði æðislegar og hræðilegar stundir hérna í norge en á heildina litið þá er ég bara mjög ánægð að hafa skellt mér út. það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. það er líka bara ca 1 og 1/2 mánuður í að ég komi heim á klakann minn góða og þá er á ég bara 2 ár eftir hérna.

en nóg um það. ég verð að vinna á kea í sumar. þetta verður mitt síðasta suma sem þjónn (segi ég) og verð ég að vinna með litlu syst og kannski henni sillu minni;) svaka stuð. ég kem á klakan föstudaginn 8 juní beint í útskriftina hennar eddu láru minnar;) svo er það bara vinna mánudaginn 11 júní. jájá en það er allt gott að frétta af mér. er að gera stuttmynd (mappefilm) og síðan tónlistarmyndband (selvvalg). þannig að það er nóg að gera. síðan er 1 heimapróf í þar næstu viku. (skrifa 2 ritgerðir á 1 viku) og dagana 5-7 júní þá er munnlegt próf hjá mér;) svaka gaman.

þetta er svona það sem er að gerast hjá mér næstu dagana.

 en já ég var að segja frá því hvað ég gerði um páskana og var komin að því þegar við vorum að fara í eftirpartý. heheh. en við fórum í eftirpartý hjá frönskum "gæja" með vinum hans 2. heh. partýið byrjaði voða venjulega, við fengum nattmat hjá félaganum (alveg  flaming hot chille con carne) og hvítvín, við spjölluðum og höfðum gaman. svo allt í einu breyttist þetta í algjöran sirkus.

 allt í einu byrjar frakkinn að dansa við mette á miðju stofugólfinu, þetta veitti restinni af strákunum mikinn innblástur og allt í einu var okkur öllum boðið upp í dans (meira svona dregnar á gólfið). svo allt í einu fer einn þeirra að játa ást sína á mér og annar að sniffa hárið á ´mér og baaaa .... fékk alveg nóg. hehheeh við fórum því að hugsa um að tía okkur heim.

það tók nú sinn tíma að koma sér út þar sem félagi var allaveg óður í að fá símanúmerið mitt og spurði alla að því. svo loksins komum við okkur út og þá var beðið eftir leigubílnum. við vorum vú örðin frekar ölfuð á þessun tíma en við komum okkur allaveg heim með leiguíl. heheh eins og flestir leigubílsstjórnar í osló þá var okkar frá indlandi eða eitthverstaðar þar í kring. haldiði ekki að félaginn hafi keyrt á miðjum veginum allan tíman og skrofað sms á leiðinni. ekki leist mer nú á þetta. heheh við spurðum hann hvort að hann væri nokkuð fullur hann sagði að svo væri ekki. svo fór hann að tala eitthvað um hass, hvað það væri betra en venjulega sígarettur þannig að við drifum okkur bara út. við fórum svo í shell og keyptum okkur að borða. rakel var svo full að hún gat ekki borðað matinn, henni varð svo óglatt. svo ég fór bara að sofa. og vaknaðu svo eldsnemma og borðaði matinn minn;).

jæja nú er ég komi aðeins lengra ´´afram með páskana. get því miður ekki haldið ´fram því ég er að fara í 60´s part.

 

kys og kram


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 16:12:57 / rakel

páskar 2007

jæja elskurnar þá eru þessir páskar liðnir, en það þýðir að það styttist óðum í prófin hjá flestum.

en eins og flestir vita þá eyddi ég páskunum hérna í Norge. það sveið nú pínu að vera ekki heima á klakanum en það gleymdist nú fljótlega.

páskafríið byrjarði föstudaginn í þar síðustu viku og vorum við kobbi eina fólkið sem vorum á rena þá helgi. hehehe við tókum páskahreingerninguna og eyddum svo restinni í sjónvarpsgláp og almenna leti.

á mánudeginum flaug kobbi upp til tromso og fór til Mette vinkonu sem býr í Tangen. ekki var mikið gert þennan dag. við horfðum á sjónvarpið og fengum svo alvöru "mömmu mat" fra Åse (mömmu hennar Mette) síðan fórum við í svaka langan göngutúr með Åse og vinkonu hennar. heheh vinkona hennar er svaka stressuð týpa, þarf alltaf að vera að gera eitthvað og allt þarf að gerast rösklega. hehehe. já en allaveg þá fórum við í þennan líka svaka göngutúr upp í skóg. "borgarbarnið" rakel var nátturulega bara með hvíta íþróttaskó svo eg þurfti að fá lánaða skó af Åse og ég fékk svo feitt halsæri á báðar lappirnar að ég labbaði eins og ég væri með kúk í buxunum alla leiðina heim. heheh

við mette fórum svo á þriðjudaginn til osló, versluðum aðeins og önduðum að okkur menningunni. síðan hittum við mariann og morten og fórum í íbúðina hennar mariann (þar sem við gistum þessa nótttina). svo var verslað bland og kvöldmat og byrjað að drekka. heidi og 2 aðrar stelpur kom svo yfir til okkar. við tókum svo síðasta t-bane í bæinn og við tók pöbba rölt. þetta var eitthvað furðulegasta djamm sem að ég hef nokkurntíman lent í allavega eftirpartíið heheh. enn fyrst þá hittu við ljósmyndara sem að var að djamm af því að konan og börnin 2 voru upp á fjalli. eftir að hafa spjalllað mikið við félgan og ditcha hann 1-2 þá hittum við hann aftur og þá fékk ég líka þetta frábæra tilboð og koma með honum upp á hótelherergi og UPPLIFA eitthvað norskt.... please ...... (maður hefur nú heyrt þennan áður) heheh ég spurði hann þá hvað konan og börnin myndu finnast um þetta hann fullvissaði mig um að þau myndu aldrei komast að því. heheheh þá sagði ég honum að sambýlismaður minn yrði ekki rosalega ánægður heheheheheh (takk elsku kobbi minn eina ferðina enn) heheheh stundum er gott að búa með strák. en allaveg svo losuðum við okkur við hann og fórum í eftirparti með fólki sem við hittum á fridays.

við enduðum síðan í eftir


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 11:25:54 / rakel

blogg

jæja nú er ég að peppa mig upp í að blogga eitthvað meira. í kvöld er verið að fara að sýna myndirnar okkar á student pubnum.við förum í páska frí á föstudaginn og pakkinn fra mömmu er á leiðinni.

kem  með almennilegt blogg fljótlega.

 

A : best kisser ever.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M: You like to drink.
N: one in a million.
O: awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgmental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : best boy/girl friend any one can ask for.
Z : Always ready

 

R : Fuckin crazy.

A : best kisser ever.

K : You're wild and crazy.
 

E : Great in bed.

L : Unbelievably great in bed.

heheheh get ekki annað en verið sammála þessu.

hehehe ikke sant


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 15:41:36 / rakel

the blogg awards 2007

and the lasy blogg awards 2007 goes to............... rakel ármannsdóttir.....

 já katrín mín það er sko alveg rétt hjá þér að ég ætti að fá verðlaun fyrir að vera latur loggari... heheh but any who´s

eins og ég minntist á í síðasta bloggi þá var uka "menningarvika" um daginn og slapp ég bara tiltölulegar vel ut frá henni með 1-2 marbletti. fólk var að brjóta rifein og tennur, fljúga á hausinn með þeim afleiðingum að það skrapaði á sér fésið og axlir, bak og hendur svo eitthvað sé nefnt.

en núna er UKA búin og alvara lífsins tekin við. við erum byrjuð að læra um video og eigum við að gera stutt myndir. ekknum var skipt upp í hópa og allri fengu sama handritið en mismunandi tegund þema innan kvikmynda heimsins. þar á meðal var action films, western, musicals. comedy og hryllingmyndir. en hvað haldiði að minn hópur hafi fengið..... heheheh science fiction. hehehehehehhehehehehehhehehehehheheheheh

við erum sem sagt 3 stelpur og leif tore sem þýðir að við erum 4 stelpur að gera vísindaskáldskaps mynd heheheheh. það verður gaman að sjá hevernig þetta kemur út. við byrjuðum að taka upp á fimmtudaginn og klárum það á mánudaginn. svo er það editing til föstudags þar sem við sjáum svo allar myndirnar. hlakka mikið til og vona að myndin verði góð. 

það verður líka gaman að sjá hvernig jakobi og co tekst með sína mynd. þeir fengu musical og hlakka ég mikið til að sjá útkomuna;)

annars er ekki svo mikið að frétta, personalfest á laugardaginn sem þýðir að maður verður blind fullur á kostnað skólafélsgsins.... ;) svo er það bara fleiri myndir í bígerð.

því miður kem ég ekki heim um páskana, fríið er ekki nógu langt til þess að það borgi sig að koma heim og svo leyfir fjárhagurinn það ekki. þannig að mamma hefur fengið það mission að senda mér páskaegg, bæjara og eitthvað fleira til að gera páskana pínu meira íslnska... en við vinkonurnar ætlum að hafa það huggulegt hérna í rena um páskana. ég er búin að lofa að bjóða þeim í kvöldmat einn daginn og elda ekta íslenskan bæjara handa þeim svo er búið að bjóða mér í kvöldmat hér og þar um noreg;) ætlum að kíkja i smá road trip til marianne i HURUM (hehe vona að ég skrifi þetta rétt).

þetta er svona það sem er að frétta af mér í bili.

 

kys og kram fra norge.


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 00:03:51 / rakel

48% bitchy

ég fékk senda fra vinkonu minni þessa alveg frábæra síðu til að stytta manni stundirnar. http://ynr.blogthings.com/areyouaplayerquiz/outcome.php. í þessari heimsókn minni komst ég að ýmiskonar hlutum um sjálfan mig eins og;

I´m Part Diva

You know that a girl's gotta work it to get her way in the world. And while you aren't about to throw a tantrum at every turn... You do amp up the drama when you know you need it. You mix charm, honesty, and kindness to get ahead. Ok ég viðukenni það að ég á nú alveg mina dívu takta hehehe.

I´m 48% Bitchy Generally, you're an average woman, with average moods. But sometimes well, watch out! Sometimes, you let your mean side get the better of you. And you enjoy every minute of it. Hehehe uuuu já…

my pick up line is: You're just the way I like my coffee. Tall, black, and strong. Hehehe nei efast um að þessi myndi virka heheheheeh 8)

What Famous Pinup Are You? You are Maryiln Monroe. A classic tortured beauty. You're the dream girl of many men. Yet they never seem to treat you right Ohh ikke sant…

I´m a Passionate Kisser.

You are the most likely type to kiss a sexy stranger.done ;)

Your kissing style is unpredictable and free spirited. Hehe jebb ;)

You could kiss anyone at a drop of a hat. Ekki hvern sem er en…

It's all about where your passion leads you. Hhehe

My Celebrity Boob Twin: is Angelina Jolie. humm ekki slæmt ha hehehehe :lol:

I Should Be With a Water Sign!

Your best match is a Cancer, Scorpio, or Pisces Why? You crave intimacy and connection in your relationship And while most guys can't open up enough for you, a Water Sign can Not that you're whole relationship will be soul gazing A Water Sign matches your goofy sense of humor - and desire to help others. Heheh ok you guys in the water signs, call my;)

I’m a Fierce Femme You have a wild side, and you aren't afraid to bring it out when the time is right. But you also know when to hang back and keep your "crazy chick" persona in check. In fact, some of your friends may be surprised to find out how far you can take it... You may look mild mannered, but it's all an act! Heheheh ;)

 

en annað í fréttum er að ég er komin í stjórn skólafélagins. ég er yfir upplýsingar og kynningar/promotion "deildinni". er rosalega spennt, gott að hafa þetta í CV og ég dfæ skrifstofu;) heheh

síðan er mennigar vika að byrja í skólanum sem þýðir ekkert annað en viku djamm, það eru tónleikar, uppistand eða truadór á hverjur kvöldi frá og með næsta laugardag.

er að berjast við að reyna að setja inn myndir, gegnur ekkert allt of vel. en ætla að vera dugleg að taka myndir í vikunni.

jæja nóg í bili, verið dugleg að commenta annars hætti ég þessari vitleysu... þykir þetta nú ekki svo gaman;)

kys og klemz fra norge


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 01:47:00 / rakel

skamm skamm

já ég veit

skamm skamm rakel fyrir að vera ekki duglegri við að blogga. ég skal lofa að reyna að vera duglegri.

en alla vega þá er ég búin að fá út úr ritgerðinni minni sem ég var að skrifa síðast þegar ég bloggaði og fékk góða umsögn. síðan var farið í svokallaða "skíðaferð" til salen í svíþjóð þar sem lífsblómið var vel vökvað. við fórum ca 30 -35 stk frá skólanum og bjuggum í hytte eða sumarbústöðum. við komum á föstudaginn um 14-15 leitið og var þá strax byrjað að drekka. við borum 15 saman í bústað og fyrir og eftir party að sjálfsögðu í okkar bústað. á laugardagskvöldið tókum við nokkur upp á því að fara að renna okkur í ruslapokum og á þoturössum um nótti með bjór við hendi. þetta er svona í stuttu máli hvað við gerðum, þetta var alveg frábær ferð.

já síðan fórum við marianne á dansæfingu í kvöld, já ég var kannski ekki búin að segja ykkur frá því að ég og marianne erum byrjaðar í danstímum. heheh

vinkona okkar ase er með dansæfingar í skólanum og bað okkur um að koma og vera með. heheh í dag ´þá vorum við 3 frá háskólanum og síðan voru svona 20 stelpur sem voru ábyggilega enn´þá í grunnskóla. mér leið nú eiginlega eins og risaeðlu þarna innan um lambakjötið. og ekki skánaði það nú þegar ase byrjaði að kenna okkur nútíma dans. heheheh hefði þurft að klára kippu af bjór eða hálfan fleyg af vodka til að getað gert þette. hehehheh

en allaveg þetta er allt sem að ég er búin að vera að gera núna að undanförnu, já nei ég var líka að taka upp æfingar stuttmynd, við vorum bara 3 stelpur saman í hóp heheh að taka upp, leika og klippa. útkoman var furðulega en satt bara alveg ágæt. ætla að reyna að setja hana inn á síðuna eða myndasíðuna. síðan er von á fleiri myndum bæði frá því stóra partýinu fyrir jól, jólahlaðborðinu og frá  salen. var að byrja að setja inn myndir í kvöld

já og katrín ég skildi ekki alveg hvað þú áttir við með síðasta kommentinu þínu. farið varlega það er hættulegt að vera í útlöndum eða eitthvað svoleiðis.

þanngað til næst

kys og kram


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 22:36:42 / rakel

nei, hún er ekki dauð bara svolitíð upptekin

hæhæ elskurnar

úff það er búið að vera crasy að gera í skólanum frá því að ég kom hingað. byrjuðum á að framkalla myndir en þar sem mínar myndir eyðilögðust allar (4myndir af 5 filmum voru í lagi) mátti ég gjörusvo vel að taka nýjar myndir og finna nýtt þema. ástæðan fyrir því að myndirnar eyðulögðust var vegna þess að ljósmælirinn í myndavélinni var ónýtur :(. ég er ennþá frekar fúl útaf þessum myndum því þær hefðu orðið geggjaðar. tókst samt að nota 1 mynd af þeim sem voru í lagi frá íslandi. en nóg með það.
síðan höfum við vinkonurar, ég marianne og katja, tekið það að okkar að kynna skiptinemunum fyrir norskri menningu; þar sem við sérhæfum okkur í félagslífinu;) heheh er búið að vera mj0g gaman. síðan fengum við ritgerðar verkefni í dag, þurfum að endurbæta radio reportasje okkkar fyrir föstudag. held síðan að það sé eitthvap meira hjá mér í næstu viku. við erum síðan að fara að byrja með video í næstu viku, þar sem að við eigum eftir að gera stuttmynd og eitthvað fleira skemmtilegt.

ég hef verið að fá símtöl frá íslandi hvað eftir annað og fólk að spyrja mig hvort að það sé óveður hjá okkur kobba. það hefur hins vegar verið sól og logn hjá okkur í 2-3 daga þannig að þið þurfið ekkert að óttast.

jæja þá er það bara að halda áfram að lesa

reyni að blogga fljótlega aftur

kys og kram


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 21:41:20 / rakel

vika ì klakan

hæhæ elskurnar

jæja nuna er bara vika i ad eg komin heim. mikid agalega hlakka eg til ad sja alla. thed er lika bara 4 dagar i ad eg vera programleder eda thattastjornandi og eg a ad tala norsku takk fyrir pent. en thatturuinn verdur næsta fimmtudag 14 des klukkan 21-22 herna i noregi, svo hann verdur heima a islandi milli 20-21. thid getid hlustad a thattinn a netinu (eg set heimasiduna inn a morgun eda hinn) hehehe lofa ad thid eigid eftir ad hlæja af ykkur rassgatid ad heyra mig tala norsku.

enn allaveg tha get eg ekki bedid eftir ad koma heim og hitta ykkur øll, sjaumst eftir eina viku.

kys og kram


» 18 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 14:52:49 / rakel

27 dagar ì mig

hæ elskurnar

jæja nùna styttis òdum ì ad èg komi heim. pùff nùna er èg bùin ad vera hèrna ì 7 mànudi og komin timi til ad kikja heim. en annars er allt ad gerast herna a rena, heheh thetta er eins og bold and the beautiful live in rena city heheh,, framhjåhøld, shorties a badherbergjum, rifrildi, vina brestir, sambandsslit, ny sambønd, gagnkynhneigdir, tvikynhneigdir, almannagjår, folar og føngulegar og margt margt fleira. ohh eg bara elska sludur heheh.....

en fyrir utan allt dramad a rena tha fer nu ad styttast i profin, vid erum ad gera utvarpsverkefni og utvarpsthatt sem verdur sidan sendur ut i heidmark. sidan erum vid marianne og metta byrjardar i "megrun" fyrir jolin. eg prufadi pilates i fyrstakipti i gær og eg er ad drepast ur strengjum. sidan var farid i gymid i morgun klukkan 9. svaka dugleg.

jæja held ad thetta se ordid ågætt i bili

hlakka svo til ad koma heim og djamma med ykkur

kys og kram


» 16 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 19:04:51 / rakel

manudur og 5 daga

hæ elskurnar

jæja tha er madur buinn ad skila af ser ritgerdinni og tha er bara eftir ein featur grein, heimaprof og utvarpsthattur eftir. sidar er tha bara heim til landsins fagra. tharf reyndar ad lesa adeins heima um jolin og gera myndaverkefni sem ad thid kæru vinir ætlid ad hjalpa mer med;)

annars er bara allt gott ad fretta hedan, kiktum æa djammid bædi æa midvikudag og laugardag (eins og vanarlega). thar hitti eg islenska stelpu sem a kærasta i hernum (sem er lika islenskur) thannig ad nuna erum vid 5 islendingar a rena (hey eg sagdi  ykkur ad vid myndum breyta rena i islendinga nylendu;) )

sidan forum vid stelpurnar i bowling a føstudaginn. heheheh uff thid hefdud att ad sja okkur. 4 ljoskur vid hlidina a pro bowlers hehehe, einn var meira ad segja svo godur ad sina okkur hvernig ætti ad halda a kulunni. heheheheheh

en lofa ad bloggga fljotlega, en bara ef ad thid verdid dugleg i commentunum

kys og kram


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3